Skip to main content
  1. Hjólreiðar styrkja hjartað, lungun og blóðrásarkerfið. Afkastageta hjarta- og æðakerfisins ásamt lungna eykst. Hjólreiðar draga úr hættu á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og háum blóðþrýstingi.
  2. Hjólreiðar byggja upp styrk í neðri hluta líkamans, svo sem framanlærisvöðvum, aftanlærisvöðvum, rassvöðvum og kálfum. Þær auka einnig þol, þannig að þú getur hjólað lengur og við meiri ákefð með tímanum.
  3. Hjólreiðar brenna vel hitaeiningum og eru því frábær leið til að stjórna líkamsþyngd. Þær auka efnaskipti og hjálpa til við að losna við óæskilega fitu, sérstaklega þegar samtímis er hugað að hollu mataræði.
  4. Álag á helstu liði neðri hluta líkamans, sérstaklega hné og ökkla, er mun minna í hjólreiðum en til dæmis í hlaupum, sem gerir þær hentugar fyrir fólk með liðvandamál eða þá sem eru að jafna sig eftir meiðsli.
  5. Hjólreiðar losa endorfín og serótónín, sem hjálpa til við að draga úr streitu, kvíða og þunglyndiseinkennum. Að eyða tíma utandyra getur einnig bætt skap og andlega líðan.
  6. Að halda jafnvægi á hjóli bætir heildarsamhæfingu og jafnvægi líkamans sem getur gagnast okkur í mörgum athöfnum daglegs lífs, til dæmis minnkað hættu á að detta eða hrasa.
  7. Margir taka þátt í hóphjólreiðum eða taka þátt í starfi hjólaklúbba. Það eykur samfélagstilfinningu og eflir félagsleg tengsl. Þetta getur virkað hvetjandi fyrir einstaklinginn og gert hreyfinguna skemmtilegri.
  8. Hjólreiðar eru umhverfisvænn samgöngumáti sem minnkar kolefnisfótspor þitt á sama tíma og þú nýtur náttúrunnar og fallegra leiða.
  9. Reglulegar hjólreiðar byggja upp þol og auka almenna orku sem gerir dagleg verkefni auðveldari og dregur úr þreytu.
  10. Regluleg hreyfing eins og hjólreiðar hjálpar til við að koma lagi á svefnvenjur, auðveldar okkur að sofna og sofa lengur og bætir svefngæði.

Allir þessir ofan töldu þættir eru ávinningur þess að stunda hjólreiðar. Þessi ávinningur gerir hjólreiðar að kjörinni hreyfingu sem bætir almenna heilsu, jafnt líkamlega sem andlega og eykur vellíðan og lífsgæði.